1% AF ÞJÓÐINNI.
Það var í gærkvöldi sem hópurinn náði því að verða eitt prósent af þjóðinni, en með öllu jöfnu má segja að það rétt rödd 10 prósentar af þjóðinni meðað við fjölda Íslendinga á andlitsbókinni. Þó svo að það slái margan utanundir að vita að fordómar efnisins hafi farið svona snarminnkandi með árunum að þá skal mér ekki undra, og löngu komin tími til. Þessari vitund er mörgu að þakka og þó í sjálfu sér mest því upplýsingaflæði sem internetið gefur okkur en það er fátt sem Íslenskir fjölmiðlar bjóða okkur uppá í sannleika um kannabisefni, sem er í samhengi við þróun, og vitund okkar á þessu efni í dag. En það er með réttu skömm af því hvernig við drögum eitthvað sem hefur jafn stórkostlegan lækningarmátt, niður á plan vitundar manna sem fara hér með meðferðarmál, sem er í raun vinna eftir meðferðaprógrammi og upplýsingum frá gamla Silungarpolli. En það er of oft ansi langt niður á plan sannleikans þegar forvarnir eiga sér stað, og til að nefna sem dæmi, þá vill Lögreglan enn tala um við unglinga að sveppir Íslands sem þykja með sterkari ofskynjunarsveppum, sé bara uppgerð og ímynun hjá unglingum, svipað og að fara á ímyndunarfyllerí. En svo veit nánast hvert einasta mannsbarn hversu sterkir og ýktir þeir eru, og hefur sterkt dæmi, og mjög vel leikið og raunverulegt atriði komið fram í Dagvaktinni, en lögreglan lítur jafnan svo á að þarna hafi þeir verið að leika ímyndunartripp í leik.
Ég fagna því að hér sé komin vettfangur fyrir skoðanaskipti fordómalausra skrifa, og okkur öllum verði hollt af, það fer vonandi engin hér að segja að reykja kannabis og það blandað tóbakki sé skaðlaust, jafnt og það fer vonandi engin að segja hér að það geti drepið þig, eins og svo margir enn vilja halda fram. Við verðum að vera réttu megin, en þó báðu megin við borðið ef nokkurntíma niðurstaða á að geta átt sér stað í því hvort betra sé að lögleiða kannabis eða ekki og þá hvernig.
En til hamingju með þetta kæru Íslendingar. |