Egill Helgason vill lögleiða kannabis

Egill Helgason fer ekki í felur með skoðanir sínar á lögleiðingu kannabisefna.

Egill Helgason fer ekki í felur með skoðanir sínar á lögleiðingu kannabisefna. DV/Samsett mynd.

Föstudagur 27. mars 2009 kl 14:20

Höfundur: Ritstjórn DV (ritstjorn@dv.is)

Sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason vill lögleiða kannabis og segir mikla þversögn bundna í því að marijúana sé eitthvað hættulegra en áfengi. „Ég vill lögleiða kannabis, marijúana, gras. Þetta er miklu skaðminna efni en áfengi,“ sagði Egill Helgason í morgunútvarpi Rásar 2 þegar talið barst að aðgerðum lögreglu gegn íslenskum gróðurhúsum kannabisefna.

Egill sagði helsta vanda kannabisefna vera þann að efnið er selt af sömu mönnum og selja amfetamín. „Ég hef verið þessarar skoðunar lengi.“

Egill benti á evrópukeppnina í knattspyrnu í Portúgal árið 2004 en þá ákváðu Portúgalar að minnka framboðið af áfengi en auka framboðið af kannabisefnum. „Munið þið ekki eftir evrópumótinu í Portúgal fyrir nokkrum árum þegar bresku bullurnar komu og lögreglan í Portúgal fór að dreifa kannabisefnum til þeirra? Það voru engin slagsmál. Menn sitja bara eins og jólasveinar út í horni.“

Hann vill ekki leyfa önnur efni en segir kannabisræktunina hér á landi vera íslenskan iðnað: „Hann býr til gjaldeyri og svo framvegis.“


© 2000 - 2010 powered by
www.doteasy.com